HireFT
Browse JobsHow it worksPricingSuccess Stories
    Back to jobs
    DE

    Deloitte

    Professional Services

    Almenn umsókn

    Kópavogur, IcelandOn-SiteFull-timePosted 4mo ago
    All Deloitte jobs

    Job description

    Við ráðum bæði nýútskrifaða háskólanema, meistaranema og reynda sérfræðinga til starfa. Við sækjumst eftir hæfasta fólkinu og því fleiri sem sækja um hjá okkur, þeim mun líklegra er að við finnum besta starfsfólkið.
    Hjá okkur starfa löggiltir endurskoðendur, viðskiptafræðingar, lögfræðingar, verkfræðingar, tölvunarfræðingar, kerfisfræðingar, fjármálaverkfræðingar, viðurkenndir bókarar og svo mætti lengi telja.
    Athugaðu hvort við höfum laust starf sem hentar menntun þinni og reynslu eða sendu okkur almenna umsókn. Við geymum umsóknir í 12 mánuði og byrjum alltaf á því að leita í okkar eigin gagnagrunni þegar störf losna.

    Hverju sækjumst við eftir?
    Hjá Deloitte leggjum við áherslu á að ráða til okkar metnaðarfullt og skemmtilegt starfsfólk. Við bjóðum vinnuaðstöðu eins og hún gerist best, áhugaverð verkefni, skýra starfsþróunarmöguleika, lærdómsmenningu á vinnustaðnum, sveigjanlegan vinnutíma og frábæran vinnuanda. Endilega sendu okkur umsókn ef þú vilt slást í hópinn.

    Starfsþróun þín

    Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum.

    Að auki bjóðum við upp á:

    • Sveigjanlegan vinnutíma með tækifærum til heimavinnu
    • Regluleg check-in samtöl, mentor sem kemur þér inn í starfið og aðgang að innanhúss coach
    • Líkamsræktarstyrk og virkt starfsmannafélag

    Um Deloitte, fólkið okkar og menningu

    Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

    Athugaðu að almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega.

    Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

    Job details are sourced from the employer's original posting.

    Open job posting
    DE

    About the company

    Deloitte

    Deloitte is a professional services network that provides audit and assurance, consulting, financial advisory, risk advisory, tax, and related services.

    View all Deloitte jobs
    Industry
    Professional Services
    Founded
    1845
    Open roles
    200

    Interested in this role?

    Apply with HireFT

    Free to start — no card required.

    Your fit

    How well do you match?

    Sign in to see how your résumé lines up with this role.